fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Hér er breytingartillaga sem felur í sér mikla hagræðingu og það mun ekki koma niður á þjónustu hjá viðkomandi stofnunum sem eru stofnanir ríkisins. Inni í þessu er falið að gera jafnlaunavottunina valfrjálsa, breyta lögum um opinbera starfsmenn, aðhaldskrafa á ráðuneytin en sömuleiðis erum við að leggja til að menn nýti það sem er til, hefur reynst vel og komin er reynsla á. Það er nokkuð sem við kölluðum Ráðhildi sem var sett á laggirnar í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu á síðasta kjörtímabili og ég er sannfærður um að það ráðuneyti er til í að leyfa hinu opinbera að nota það alls staðar í ríkisrekstrinum. Við sjáum oft fréttir um t.d. kostnað sem fer fram úr hófi og gengur fram af fólki. Síðan koma ráðuneytinu og kannast ekki við neitt og vita ekki af hverju þetta varð. Með því að fara þessa leið (Forseti hringir.) sem við leggjum hér til er hægt að koma að stærstum hluta, og kannski alveg, í veg fyrir það. Ég hvet hæstv. ríkisstjórn til að skoða þessi mál og samþykkja þessa tillögu.