fjárlög 2026.
Miðflokkurinn leggur hér fram afskaplega og afar hógværa aðhaldskröfu á Stjórnarráðið. Við höfum stutt aðhaldskröfur annarra flokka hér í dag sem hafa gengið miklu lengra, en þessi aðhaldskrafa er mjög hógvær upp á 400 milljónir á Stjórnarráðið, á ráðuneytin sem hafa vaxið hvað hraðast í íslenskri stjórnsýslu síðustu árin og er ekkert lát sjáanlegt á því. Þetta er auðvelt að gera. Þetta eru 3% og ætti að vera hægt að ná fram strax á næsta ári. Það kemur mér auðvitað á óvart, frú forseti, að sjá hér að tillagan virðist vera felld af stjórnarliðum. Þau hafa engan áhuga á því að draga úr stjórnsýslu ríkisins, engan áhuga á því. Þetta eru 3%. Þetta er aðhaldskrafa á þann hluta ríkisvaldsins sem hefur vaxið mest á síðustu árum. Það er auðvitað fellt hér. Þetta er vinstri stjórn.