157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[16:18]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Við í Framsókn leggjum hér til að aukið verði í vísinda-, samkeppnis- og rannsóknasjóði um 500 milljónir og búinn verði til nýr sjóður sem verður fjárfestingarsjóður landsbyggðarinnar, sjóður sem hefur það að hlutverki að styðja við og efla nýsköpun fyrirtækja á landsbyggðinni sem svo sannarlega þurfa á því að halda að styrkt sé við þau í þeirra starfsemi. Þar er unnið gríðarlega mikið og öflugt starf, bæði í fyrirtækjunum og hjá ýmsum sprotum mjög víða um land. Það sem þessi fyrirtæki og sprota vantar svo sárlega er fjármagn til þess að halda áfram með sína þróun og þarna erum við að koma til móts við það með því að setja á fót þennan sjóð, fjárfestingarsjóð landsbyggðarinnar sem myndi fá á næsta ári 500 milljónir, og ég hvet þingmenn til þess að styðja og þá einkum þingmenn landsbyggðarinnar.