fjárlög 2026.
Frú forseti. Þessi hagræðing hér snýr að flutningssjóði olíuvara. Vandkvæði á þeim sjóði hafa verið að hann er alltaf greiddur eftir á þannig að tilgangurinn hefur aldrei náðst fram, það hefur ekkert haft áhrif á verðlag á þjónustu vegna þess að hann er greiddur eftir á. Hann fellur því svolítið illa inn í kerfið okkar. Það þarf að gera einhverja bragarbót á þessu ef þetta á að virka eins og það á að gera og við leggjum því til að þetta verði fellt niður. Þetta er búið að vera í nokkur ár, við höfum haft þessa vitneskju sem komum að þessum málum og ég held að það sé réttast að greiða þessu máli grænt og hreinsa aðeins til í kerfinu vegna þess að þetta fjármagn nýtist ekki til þess sem það var hugsað.