157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[16:28]
Horfa

Grímur Grímsson (V):

Frú forseti. Mig langaði til að koma hingað upp og gera grein fyrir atkvæði mínu. Ég segi auðvitað já við þessu en mig langaði til að benda sérstaklega á það að undir lið 9, Almanna- og réttaröryggi, hefur verið bætt töluvert við, ekki í meðförum nefndarinnar heldur bara í fjárlagafrumvarpinu, vil sérstaklega benda á að það hefur verið bætt við lögreglumönnum og er það vel. Það er ýmislegt sem hefur verið gert til að auka getu lögreglunnar til að takast á við brotastarfsemi og það er vel, m.a. eru núna á þingmálaskrá dómsmálaráðherra held ég um fimm mál sem varða sakamálalögin og almenn hegningarlög og jafnframt um brottvísun af heimili og notkun rafrænna gagna í því sambandi.