fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég vildi vekja athygli á þessari aukningu í sóknaráætlanir landshluta. Hér er fjárlaganefnd að taka upp ný vinnubrögð: Í stað þess að afgreiða fjölda lítilla styrkja sem oft tengjast góðum verkefnum í landshlutunum eru fjármunir færðir út til landshlutasamtaka sem hafa bæði ferli og nærþekkingu til að taka afstöðu til þessara mála í stað þess að það sé eiginlega undir nærþekkingu á störfum Alþingis komið hvort fólk átti sig á því að það sé hægt að sækja um fé til fjárlaganefndar. Þetta er gott fyrir landshlutana, þetta er gott verklag og betra heldur en það sem var áður. Ég hef mikla trú á þessu.