157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[16:33]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Við erum hér enn og aftur komin með tillögu til að reyna að hjálpa hv. þingmönnum stjórnarliðsins að ná því sem þeir lofuðu fyrir kosningar, þ.e. að hagræða í ríkisrekstri. Við munum alveg halda áfram að koma með tillögur. Það hlýtur að koma að því að hæstv. ríkisstjórn sýni einhvern lit í því að reyna að hagræða. Þau eru alveg búin að sýna að þau geta eytt peningum, 143 milljarðar á milli umræðna. Maður myndi nú ætla, þar sem hér er sparnaður upp á 13,4 milljónir, að það væri kannski hægt að gera eitthvað í þessu. Viðreisn, eitthvað líf? Nei, virðulegur forseti, ekki núna. Við reynum aftur. En ég segi já.