fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Sagan endurtekur sig um áætlanir um að skerða sóknargjöldin. Við Sjálfstæðismenn erum hæfilega ánægð með að horfið hafi verið frá upphaflegum áformum um mikla skerðingu. En það er samt ástæða til að árétta það hér að fyrirkomulagið og þessi stanslausa ásælni stjórnvalda í þessi gjöld sem tilheyra sóknunum er einfaldlega óásættanleg. Hér er nefnilega um eiginlega skerðingu að ræða samkvæmt gildandi lögum og ég hvet stjórnvöld til að láta af þessu og koma innheimtunni og skilunum í lögbundið form. Þjóðkirkjan er mikilvæg grunnstoð í íslensku samfélagi og starf sóknanna er ómetanlegt. Ég hvet stuðningsmenn til að fylgjast með því hvernig við fylgjum þessum málum eftir í þinginu.