fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Ég fagna því að fjárlaganefnd hafi ákveðið að framlengja þetta tímabundna ákvæði sem, líkt og hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson kom inn á í sinni ræðu, hefur verið við lýði í áratug eða jafnvel meira. Ég verð að viðurkenna að það kom mér verulega á óvart að fyrrverandi ríkisstjórnir hafi bundið þannig um hnútana að þjóðkirkjan sjálf þurfi að mæta hér fyrir fjárlaganefnd á hverju ári til að tryggja að þau fái fjármagn til að reka sóknir úti um allt land. (Gripið fram í.) Þessu þarf að breyta og ég heyri að hv. þingmenn, sem voru stjórnarþingmenn á síðasta kjörtímabili, eru svolítið uggandi yfir því að þeir hafi ekki náð að koma þessu í gott horf. En hér er komin ný ríkisstjórn sem tryggir m.a. þetta tímabundna fjármagn, tryggir það að sóknirnar geti blómstrað úti um allt land og ég tel, og við teljum, mikilvægt að koma þessu fyrirkomulagi sóknanna í fast og gott horf.
(Gripið fram í: Heyr, heyr.)