157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[16:42]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Við erum hér að leggja til aðhald þegar kemur að málaflokknum útlendingamál. Ég held að við þurfum ekkert að ræða það neitt sérstaklega. Skilningur á sjónarmiðum sem við Sjálfstæðismenn erum búnir að hafa í mjög langan tíma hefur aukist mikið og umræðan hefur breyst, sem betur fer, farið í réttari farveg. Við erum hins vegar enn þá á þeim stað að það er verk að vinna og við munum gera allt hvað við getum til að styrkja hæstv. ráðherra í þessum málaflokki í skynsömum málum. Nóg er af málunum og hugmyndunum sem frá okkur og okkar fyrrverandi ráðherrum í þessum málaflokki hafa komið. En þegar við erum að forgangsraða þá er augljóst að þarna er málaflokkur sem við eigum að leggja minna til og ganga hraðar til verka.