157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[16:44]
Horfa

Grímur Grímsson (V):

Frú forseti. Mig langaði til að koma hingað upp og gera grein fyrir atkvæði mínu á þann hátt að ég segi já við þessu. Það er þannig að til meðferðar í allsherjar- og menntamálanefnd eru nú þegar frumvörp sem varða útlendingamál og eru líka boðuð frekari frumvörp frá hæstv. dómsmálaráðherra um útlendingamál. Ég tel að þegar öll þessi frumvörp eru komin fram þá séum við komin með gegnsætt og sanngjarnt ferli og laga- og regluverkið sé gegnsætt og sanngjarnt. Ég held að það sé tilhlökkunarefni þegar að því kemur og ítreka að ég segi já.