fjárlög 2026.
Frú forseti. Með þessari tillögu leggur Miðflokkurinn til að stöðva frekari fjárveitingar til borgarlínu og tengdra verkefna og endurskoða samgöngusáttmálann í heild sinni með það að markmiði að forgangsraða nauðsynlegum vegaframkvæmdum á höfuðborgarsvæðinu og leggja samhliða áherslu á að bæta almenningssamgöngur á hagkvæman hátt. Framlög til stórra innviðaverkefna á höfuðborgarsvæðinu, þar á meðal svokallaðrar borgarlínu, eru há enda framkvæmdin kostnaðarsöm og umfangsmikil. Miðflokkurinn telur að stjórnvöld hafi misst sjónar á kostnaði annars vegar og mögulegum ábata hins vegar af þeim verkefnum sem nú er unnið að undir hatti Betri samgangna ohf. Miðflokkurinn leggur til að stöðva útgjöld til þessa málaflokks svo nemi 6 milljörðum kr.