157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[16:47]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Þessi þráhyggja nokkurra meinlokumanna um borgarlínu á höfuðborgarsvæðinu vegur beint að hagsmunum, sérstaklega Reykvíkinga. Reykvíkingar eiga það skilið að hrundið verði af stað framkvæmdum um raunverulegar úrbætur í vegasamgöngum í Reykjavík. Tillaga um að eyða 6 milljörðum og þaðan af meira í borgarlínu er eingöngu til þess gerð að skrattast í bifreiðaeigendum í Reykjavík af hálfu meinlokumanna sem ætla sér að útrýma bílaumferð í Reykjavík. Það er nauðsynlegt að endurskoða þessi áform. Höfuðborgarsáttmálinn kemur ekki í veg fyrir það, enda er hann háður samþykki fjárveitingavaldsins um fjárframlög til þessa verkefnis, en það er mjög brýnt að farið verði í raunverulegar framkvæmdir við vega- og gatnakerfið í Reykjavík á næstu misserum.