fjárlög 2026.
Frú forseti. Þetta er ein albesta breytingartillaga sem sést hefur á Alþingi í háa herrans tíð. Með þessu er ekki aðeins fundinn auðveldur sparnaður upp á 6 milljarða fyrir næsta ár heldur er komið í veg fyrir, eða því a.m.k. frestað, að búin verði til eilífðarhít fyrir ríkisfé. Enginn veit hvað borgarlínan mun kosta öll þegar og ef þar að kemur, hvað þá hver rekstrarkostnaðurinn verður. Nægur hefur hallinn verið á Strætó. Við þær aðstæður sem nú eru uppi er í rauninni ekkert annað í stöðunni en a.m.k. að fresta þessum áformum og með sparnaðinum sem síðan næst á komandi árum og áratugum af því að hafa ekki byggt og rekið borgarlínu verður hægt að gera göng um allt land. Það verður meira að segja hægt að gera göng í gegnum Esjuna ef Reykvíkingar vilja það, en fyrir alla muni komum í veg fyrir að íbúar Reykjavíkur og höfuðborgarsvæðisins verði fyrir því tjóni sem hlýst af því að þrengt verði (Forseti hringir.) að umferðinni hér um allan bæ með tilkomu borgarlínunnar.