fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Við höldum áfram. Við höfum núna við þessa fjárlagavinnu og fjárlagagerð komið með tillögur um skattalækkanir, hagræðingu og skattalækkanir sem nýtast sérstaklega heimilunum, fólkinu sem er að reyna að koma sér þaki yfir höfuðið og fyrirtækjunum sem eru að keppa við erlend fyrirtæki. Ég veit ekki hvað ég á að segja. Ég var svolítið bjartsýnn þegar ég hóf að kynna þessa tillögugerð og að einn og einn stjórnarþingmaður myndi detta inn. Þeir liggja eitthvað lágt. Viðreisn, ég bara spyr. Það er ekkert að gerast hér. Við höldum bara áfram að koma fram með þessar tillögur.