fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Hér er um mjög góða hagræðingartillögu að ræða sem m.a. felst í því að leggja niður Neytendastofu og líka að skera niður fjárframlög til Samkeppniseftirlitsins um 50%. Það eru mjög einföld rök fyrir því. Samkeppniseftirlitið á Íslandi hefur verið með mál í fasa tvö, svona 35–40% af málum sem hafa komið inn til Samkeppniseftirlitsins hafa farið í fasa tvö. Það þekkja allir frægu majónesskýrsluna sem allir muna eftir. Opinberir starfsmenn voru að eyða tíma í að skrifa um majónes, á meðan löndin sem við berum okkur saman við eru með mál í fasa tvö í svona 2,5–4% mála. Með því að við berum okkur saman við aðrar þjóðir er hægt að skera niður í umfangi Samkeppniseftirlitsins.