fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Það er búið að gefa út svo margar skýrslur um það hvað það sé skynsamlegt að sameina ríkisstofnanir. Ef þær væru allar settar á einn stað þá myndu þær væntanlega fylla Laugardalshöllina. Við höfum sem betur fer farið í að sameina ýmislegt, ég þekki það sjálfur af eigin raun, t.d. heilbrigðisstofnanir. Síðast í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu var stofnunum fækkað stórlega og þær efldar en um leið náðum við sparnaði í rekstri. Það er svo magnað, virðulegi forseti, að það er ekki enn þá komin fram hugmynd um að sundra stofnunum sem hafa verið sameinaðar. En það er búið að setja þessa tillögu niður á blað hvað eftir annað, að sameina þessar stofnanir og spara þá í yfirstjórn þannig að það sé hægt að nýta betur kraftinn sem býr í þeirra starfsemi. Það er því ekki eftir neinu að bíða, virðulegur forseti. Hæstv. ríkisstjórn getur samþykkt þessa tillögu og gengið í þetta verk ef það er einhver vilji til þess að hagræða í ríkisrekstrinum.