fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Nú þarf ég aðeins að leita atbeina virðulegs forseta vegna þess að það var góð samstaða um það í hv. fjárlaganefnd, og ég tek undir þakkir til forystu nefndarinnar fyrir það að halda vel utan um hlutina, um það að styðja ákveðin verkefni, þar með talið bókasafnssjóð og varðskipið Óðin. Hins vegar er atkvæðaskjalið þannig — við fórum nú þannig í gegnum það og reyndum að ná því sem við sáum að væri þar inni, því þetta er sett inn í hina ýmsu liði. Ég veit ekki alveg hvernig við getum sýnt fram á það með beinum hætti að við styðjum þessi verkefni.
Hér er ég að vísa sérstaklega til bókasafnssjóðsins og varðskipsins Óðins. Við viljum gjarnan greiða atkvæði með þeim verkefnum. En það er svolítið erfitt ef þessu er blandað saman við ýmislegt annað sem við þekkjum ekki jafn vel og meiri hlutinn hefur verið að fjalla um. En það er vilji þingflokks Sjálfstæðisflokksins að greiða atkvæði með þessum tveimur verkefnum sem hér hafa verið nefnd í atkvæðaskýringum.