fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Hér erum við í Framsókn að leggja til breytingu á lið 18, Menning, listir, íþrótta- og æskulýðsmál, sem felur í sér 200 millj. kr. aukningu til ferðasjóðs ÍSÍ. Þetta er gríðarlega mikilvægt mál og ég ætla bara að nefna það og þakka fyrir þá aukningu sem er þó í fjárlagafrumvarpinu upp á 100 milljónir. En það er alveg ljóst eftir samtöl við íþróttahreyfinguna og forsvarsmenn íþróttafélaganna að þarna vantar sárlega meira fjármagn en gert er ráð fyrir í frumvarpinu. Á því erum við að gera bót hér með þessari tillögu upp á 200 millj. kr. aukningu.
Það er alveg gríðarlega mikilvægt að iðkendum, börnum, sérstaklega á landsbyggðinni sem búa við kannski minni tekjur, sé gert að stunda íþróttir og fara í ferðalög til jafns við aðra. Ég trúi ekki öðru en að þingheimur, þó að ég horfi á töfluna og sjái að það er ekki vel tekið í þessa tillögu, (Forseti hringir.) ég trúi ekki öðru en að hv. þingmönnum snúist hugur og sjái mikilvægi þess að bæta þarna í fyrir iðkendur landsins.