fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég styð þessa tillögu heils hugar. Það hefur verið baráttumál undirritaðs til margra ára, og reyndar margra sem hér eru í salnum, að bæta við fjármagni í ferðasjóð íþróttafélaga. Þetta er gríðarlega mikilvægt, eins og hér hefur reyndar komið fram, landsbyggðarmál og ekki síst til þess að styðja við fjölskyldur barna og ungmenna sem þurfa að ferðast um langan veg. Ég mæli með því að við horfum til samtals við íþróttahreyfinguna um í raun frekara framlag og setjumst niður með henni og skoðum það til lengri tíma.