157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[17:18]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Þetta er hin hliðin á þessu máli sem við ræddum hér áður vegna þess að við komum bæði með tillögur um að lækka útvarpsgjaldið en sömuleiðis um lækkun á framlaginu.

Virðulegur forseti. Við þurfum auðvitað að ákveða okkur í því hvort við viljum sjá frjálsa fjölmiðlun í landinu eða ekki. Hv. þingmaður Jens Garðar Helgason fór ágætlega yfir samanburðinn hér hjá okkur og Norðurlöndunum. Hvenær tókum við um það pólitíska ákvörðun að við ætluðum að vera með langstærsta hlutdeild ríkisins á fjölmiðlamarkaði af þeim löndum sem við berum okkur saman við? Hvenær var sú ákvörðun tekin? Ég held hún hafi aldrei verið tekin og ég held að við þurfum að ræða þessi mál hreinskilnislega. Við erum ekki bara að tala, við erum að koma með tillögur. Þó svo að stjórnarmeirihlutinn felli þetta eins og allar hinar tillögurnar þá vonast ég til þess að við í fullri alvöru ræðum þessi mál og tökum á því að ástandið er ekki gott, svo ekki sé dýpra í árinni tekið.