157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[17:20]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Forstjóri Sýnar er í fjölmiðlum í dag þar sem hún segir að það sé komið að ögurstund fyrir frjálsa fjölmiðla í landinu, ögurstund. Hún talar um ríkisrisann sem gnæfir yfir allt. Ef við ætlum að standa við orð okkar um það að standa með frjálsri fjölmiðlun í landinu og aðgerðirnar séu ekki þær að gera frjálsa fjölmiðla bara alltaf háðari og háðari einhverjum ríkisstyrkjum til þess að berjast gegn ríkisfjölmiðlinum og eiga einhvern séns og koma frjálsum fjölmiðlum á spenann líka, þá verðum við að stíga stór skref og skera niður rekstur Ríkisútvarpsins sem er líka orðinn óþarfur árið 2025, í nútímasamfélagi.