fjárlög 2026.
Frú forseti. Hér leggur Miðflokkurinn til afskaplega hógværa tillögu um 20% niðurskurð til Ríkisútvarpsins sem er auðvitað, eins og ræðumenn komu að hér fyrr, risi á þessum markaði. Það er kominn tími til að Ríkisútvarpið aðlagist breyttum rekstrarskilyrðum í fjölmiðlaumhverfi samtímans. Ég sé á atkvæðagreiðslunni að það er enginn vilji í þessum sal. Það er enginn vilji í þessum sal til að taka einu sinni tillit til hófsamra niðurskurðartillagna í þessu efni, vegna þess að mér sýnist þessi tillaga vera felld hér með. Það er ekki einu sinni vilji til að skera niður um 20% og halda síðan áfram í framhaldinu. 9 milljarða er þessi stofnun að fá á næsta ári með auglýsingatekjum, 9 milljarða í samkeppni við einkaframtakið.