157. löggjafarþing — 42. fundur, 5. des. 2025.
fjárlög 2026.
1. mál
Forseti. Ég ætlaði bara að koma hingað upp og gera grein fyrir atkvæði mínu. Ég styð þessa tillögu. Þrátt fyrir að hún gangi skemur en tillaga Sjálfstæðisflokksins styð ég að sjálfsögðu öll þau skref sem eru í þá átt að minnka umsvif Ríkisútvarpsins á fjölmiðlamarkaði, öll þau skref, þrátt fyrir að mér þyki hv. þm. Karl Gauti Hjaltason temja sér of mikla hófsemi og það fari honum kannski ekki mjög vel. Ég tel að við ættum að ganga lengra en ég styð hv. þingmann í þessari tillögu.