157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[17:23]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Frú forseti. Ég styð ekki þessa tillögu og ekki tillöguna á undan. Ég ætla hins vegar að taka heils hugar undir þau almennu orð sem hér hafa fallið um að við ættum öll í þessum sal að hafa áhyggjur af því hvernig fjölmiðlaumhverfið á Íslandi hefur þróast. Við verðum að finna leiðir til þess að styrkja betur við einkarekna miðla. Ég held að við gerum það ekki endilega með því að veikja Ríkisútvarpið en fyrst og fremst þurfum við að skoða þetta heildstætt, ekki með stökum tillögum við fjárlög hverju sinni heldur þarf að skoða markaðinn heildstætt. Við þurfum líka að taka tillit til þess að óheyrilegt fjármagn fer úr landi í gegnum auglýsingasölu. Þótt Ríkisútvarpið sé fyrirferðarmikið á auglýsingamarkaði er heildarkakan stærri annars staðar. Ég veit að það stendur til að skoða þetta heildstætt og það er sú nálgun sem ég styð miklu frekar en þær einstöku tillögur sem hér eru. Ég tek hins vegar undir hin almennu orð þingmanna sem hér hafa talað. Við þurfum að gæta mjög vel að því að fjölmiðlar þrifist á Íslandi því að þeir eru ein af grunnstoðum lýðræðisins.