157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[17:30]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf):

Virðulegur forseti. Ég er hugsanlega á sömu villigötum og ágætur þingmaður Arna Lára Jónsdóttir en vildi einfaldlega draga fram að hér undir nokkrum atkvæðagreiðslum í dag er verið að greiða atkvæði um eflingu íslenskunnar. Það er Bókasafnssjóður höfunda, það er íslenska sem annað mál en það þarf líka að huga að umgjörðinni. Ég vísa sérstaklega til nefndarálits meiri hluta fjárlaganefndar sem kallar eftir, vegna þess að þetta er mjög dreift og það vantar að skerpa á ýmsu, vel unnum og ítarlegum tillögum um frekari eflingu íslenskunnar sem helst verði tilbúnar í aðdraganda fjármálaáætlunar.