157. löggjafarþing — 42. fundur, 5. des. 2025.
fjárlög 2026.
1. mál
Ég vildi koma upp og fá að gera grein fyrir atkvæði mínu í þeirri atkvæðagreiðslu sem svo sannarlega er að eiga sér stað núna en við erum sem sagt að greiða atkvæði um þá tillögu meiri hluta fjárlaganefndar um að veita 100 millj. kr. framlag til menntunar sjúkraflutningafólks auk hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða í neyðarþjónustu, sérstaklega í dreifbýli. Það er sem sagt hluti af 207 millj. kr. tillögu meiri hluta fjárlaganefndar til heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni.