fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Ég vil taka undir með hv. þm. Sigurði Erni Hilmarssyni. Við höfum fengið kynningu á stöðunni í þessum málaflokki og hér er hæstv. ríkisstjórn, ríkisstjórnarflokkarnir, að auka ríkisútgjöldin um 143 milljarða. Þau sjá ástæðu til þess og það eru engar hagræðingartillögur alla jafna nema kannski þarna, það á að taka þetta niður í 150 milljónir.
Virðulegur forseti. Ég átta mig ekki alveg á forgangsröðun þessarar ríkisstjórnar. Ástandið er ekki gott í þessum málaflokki og það kemur verst niður á skjólstæðingum sem eru börn.