fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Þótt það sé ánægjulegt að sjá samstöðuna og ég greiði þessu svo sannarlega atkvæði er eitt og annað við þessa hluti að athuga. Fyrst aðeins varðandi talmeinaþjónustuna og iðjuþjálfana, að í frumvarpinu segi að þetta sé sparnaður. Mér finnst skrýtið að hv. stjórnarliðar hafi þá ekki leiðrétt okkur ef við höfum eitthvað misskilið það sem við lásum beint upp, en gott og vel og vonandi er það ekki svo.
Virðulegi forseti. Ríkisstjórnin forgangsraðar í fjárlögunum. Það er ekki nýtt að endurhæfingarþjónusta sé mjög mikilvæg. Það eru til stofnanir sem sjá sérstaklega um þetta, í þessu tilfelli Sjúkratryggingar Íslands. Þótt það sé gott að það náðist samstaða í hv. fjárlaganefnd og í þingheimi um að bjarga þessu núna er þetta ekki eins og fyrirkomulagið á að vera og ég hvet hæstv. ríkisstjórn og hæstv. ráðherra til að sjá til þess að við þurfum ekki að standa í þessum sporum aftur. (Forseti hringir.) Þeir sem tapa á því eru þeir sem þurfa á þessari þjónustu að halda. (Forseti hringir.) Ég fagna því að baráttan hafi borið árangur. (Forseti hringir.) Það er gott að sjá fulla samstöðu um það að styðja þessi mikilvægu samtök til góðra verka.