157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[18:09]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Ég get í sjálfu sér tekið undir orð síðasta ræðumanns en allt að einu situr Miðflokkurinn hjá í afgreiðslu á þessum lið. Ég vil hins vegar vekja athygli á tölulið 73 sem fjallar um lyf. Stjórnarmeirihlutinn felldi breytingartillögu rétt í þessu til hækkunar á því. Ég vek athygli á þessu vegna þess að það hefur verið rekin algerlega óábyrg stefna stjórnvalda allt frá fjármálahruninu á sínum tíma, 2008, þegar kemur að innkaupum á lyfjum. Algerlega ósjálfbær kaupstefna sem hefur leitt til þess að lyfjaskortur er orðinn aðkallandi hér á landi og við þessu þarf að bregðast. Það er óábyrgt að ríkisstjórnin hafi ekki notað tækifærið með framlagningu á lyfjalögum núna tvívegis, bæði á síðasta þingi og á þessu þingi, til að kippa því í liðinn þannig að því hefði séð stað í þessum fjárlögum.