157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[18:10]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Hér erum við með enn eina hagræðingartillöguna. Hér er um að ræða stofnun sem var sett á laggirnar eftir fjármálahrunið þegar aðstæður voru allt öðruvísi. Það var ánægjulegt, virðulegi forseti, að fá Hagstofuna í heimsókn sem sagði okkur frá því að staða okkar þegar kemur að skuldum heimilanna væri best meðal Norðurlandanna og vanskil hefðu aldrei verið lægri. Það segir okkur að aðstæður eru allt öðruvísi heldur en þegar þessi stofnun var sett á laggirnar þegar mjög erfitt ástand var í þessum málaflokki. Þannig að, virðulegi forseti, við reynum enn og aftur að koma fram með sparnaðartillögur, stórar og litlar, en þetta lagast ekkert hjá hæstv. ríkisstjórn. Það er augljóst að allt sem sneri að hagræðingu voru umbúðir einar og ekki er samkeppninni, virðulegi forseti, fyrir að fara í tillögum frá ríkisstjórninni.