157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[18:14]
Horfa

Ragnar Þór Ingólfsson (Flf):

Frú forseti. Ég tek heils hugar undir með hv. þm. Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur varðandi þau mikilvægu málefni sem hún taldi hér upp. Ég vildi líka koma inn á tvö önnur mjög mikilvæg málefni sem er uppbygging öryggisvistunar á Hólmsheiði sem hefur verið vanræktur málaflokkur í hartnær áratug eða meira, alltaf eitthvað sem á að gerast og svo gerist ekki neitt. Þetta er þá loksins fjármagnað og er að fara í gang. Einnig varðandi tæplega 1.100 millj. kr. sem eru að fara í uppbyggingu á Stuðlum, uppbyggingu á því gríðarlega mikilvæga úrræði sem og að efla það úrræði, auka þjónustu og gera það mun betra, þannig að ég fagna þessu og segi auðvitað já.