fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Hér erum við að ræða málaflokk sem okkur voru ekki vandaðar kveðjurnar í, Sjálfstæðismönnum og ráðherrum okkar, þegar þeir voru að koma fram með tillögur sem ég held að öllum finnist skynsamlegar núna. Þá var það almenna reglan að þeir sem sitja í ríkisstjórn nú voru með stór orð um það hversu fráleitar og hræðilegar þessar áherslur voru hjá okkur Sjálfstæðismönnum. Nú þegar maður hlustar á forystumenn hæstv. ríkisstjórnar myndi maður hins vegar ætla að hún væri komin á svipaða línu eins og verið hefur, bæði hjá okkur og sömuleiðis á Norðurlöndunum og þeim löndum sem við berum okkur saman við. Hins vegar er ekki nóg að tala, það þarf líka að framkvæma. Þess vegna er þessi tillaga fram komin. Það fer ekki alveg saman hljóð og mynd, (Forseti hringir.) virðulegi forseti, hjá þessari ríkisstjórn. Það sést á þessari töflu (Forseti hringir.) enn og aftur.