fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Ég held að það skipti máli þegar við skoðum þessa tillögu að skoða hana í samhengi við aðrar tillögur sem við höfum flutt sem miða að því að auðvelda fólki að eignast húsnæði. Okkar áherslur eru mjög skýrar, það þarf að auka framboð. Við höfum ekki mikið um það allt saman að segja vegna þess að ríkisstjórnarflokkarnir eru nú að stýra stærsta sveitarfélaginu, sem hefur verið helsti eftirbáturinn eða sá aðili sem hefur séð til þess að hér er ekki nægilega mikið til af ódýrum lóðum til að við getum byggt hér ódýrt húsnæði. Okkar markmið er hins vegar mjög skýrt. Við viljum auðvitað hjálpa öllum að eignast sitt húsnæði, það er markmiðið. Við teljum að aðrar húsnæðisáherslur en þær sem þessi ríkisstjórn fer fyrir séu líklegastar til að svo megi verða. Þess vegna er þessi tillaga fram komin. Ekki það að ég hafi neinar áhyggjur af því að ríkisstjórnin samþykki þessa tillögu en það væri æskilegt að hún samþykkti (Forseti hringir.) allar þær tillögur sem við vorum með þegar kom að húsnæðisstuðningi.