157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[18:25]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Þegar við förum yfir ríkisútgjöldin sjáum við að þar er ýmislegt sem er barn síns tíma, verkefni og mál sem voru mjög aðkallandi en hafa síðan haldið áfram nokkurn veginn óbreytt þrátt fyrir að aðstæður hafi breyst og í þessu tilfelli stórbatnað. Þess vegna erum við með þessa tillögu hér, virðulegur forseti, sem sparar okkur útgjöld. Þótt það sem málaflokkinn snertir sé eilífðarmál er engin ástæða til þess að við séum með nákvæmlega sama fyrirkomulag og var þegar ástandið var með allt öðrum hætti.