157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[18:28]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Við Sjálfstæðismenn tökum hlutverk okkar hér á Alþingi alvarlega. Þetta er tillaga sem allir ættu að geta samþykkt um betri lausafjárstýringu sem sérfræðingar okkar hafa sagt að sé tiltölulega auðvelt að koma í framkvæmd. Það er mjög varlega áætlaður sparnaður með þessu. Hér er sagt: Nei, eins og í öllum 30 tillögunum, öllum 30 tillögunum sem við komum með, sem var með sparnað upp á 45 milljarða. Ég skil það, virðulegi forseti, að menn geti ekki samþykkt þetta allt saman en ég hefði þá viljað sjá að hér væru einhverjar tillögur frá hæstv. ríkisstjórn um aðhald, hagræðingu og sparnað. En þær eru engar. 100 milljarðar á fjórum árum. Í alvöru? Þarf eitthvað að tala um það? Hver er svo sparnaðurinn? Þau taka niður varasjóði, (Forseti hringir.) geggjaður sparnaður, tæma sparibaukinn, það er hagræðið. (Forseti hringir.)

Virðulegi forseti. Það er einfaldlega fyrir neðan allar hellur að sjá hvernig þessi hæstv. ríkisstjórn gengur fram. (Forseti hringir.) Að hún skyldi hafa vogað sér að segja við kjósendur fyrir kosningar (Forseti hringir.) að hún ætlaði að sýna aðhald, ráðdeild og hagræði er með ólíkindum.

(Forseti (BHar): Forseti minnir þingmenn á að virða tímamörkin.)