157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[18:35]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Ég vil bara í örstuttu máli vekja athygli á því að hér er verið að veita Byggðastofnun heimild samkvæmt sérlögum til allt að 5 milljarða lántöku á næsta ári. Það er í sjálfu sér afar jákvætt. Ég vil þó benda á það í umræðunni að stofnunin hafði beðið um 8 og telur þörfina vera 8 en ekki 5, þannig að það er alveg ljóst að með því að verða ekki við beiðni stofnunarinnar þá erum við að skerða möguleika hennar á að verða við þeim lánsbeiðnum sem berast stofnuninni á næsta ári. Ég sakna þess því að sjá hér ekki hærri tölu og að hæstv. ríkisstjórn og fjárlaganefnd hafi ekki gert bragarbót á þessu svo að stofnunin geti veitt þá góðu þjónustu sem hún gerir, nema í enn ríkara mæli.