fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Við köllum eftir því að það séu greidd sérstaklega atkvæði um þetta vegna þess að það má finna vilja hjá hæstv. ríkisstjórn til að gera eitthvað þegar kemur að þessum málum. Maður myndi nú ætla að það yrði einhver samstaða um að selja þessar eignir Íslandspósts. Manni finnst að það ætti að vera frekar augljóst.
Virðulegur forseti. Þetta er eitthvað viðkvæmt mál en ég er svona aðeins að skima eftir þessum atkvæðum sem maður taldi nú vera alveg í hendi. Viðreisn, er einhver heima? (Gripið fram í: Þessi var fyrirséður, Gulli. Svolítið gamall þessi.) Mér sýnist hann vera sígildur út kjörtímabilið.