fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Það er leitt að sjá sorg færast yfir andlit stjórnarandstæðinga þegar samstillt ríkisstjórn fellir hverja breytingatillögu þeirra á fætur annarri. Hér verður engin breyting á. Hér er Sjálfstæðisflokkurinn að dusta rykið af nokkrum hugmyndum sínum sem eru sumar áhugaverðar og aðrar þurfa frekari skoðunar við. Auðvitað er það hins vegar þannig í samstilltu ríkisstjórnarsamstarfi að þegar kemur að hlutum eins og tekjuhlið fjárlaga, sköttum, stórum stefnum og útgjöldum eða því að losa um ríkiseignir, þá tala ríkisstjórnarflokkarnir saman, hvort sem það er við gerð samstarfssáttmála eða síðan í kjölfarið. Þannig eru málin unnin en ekki með því að hlaupa á eftir breytingartillögum minni hluta við afgreiðslu fjárlaga. Þannig er það bara og það vita það allir sem það vilja vita. Ef við lítum reyndar til sögu þessarar ríkisstjórnar hefur hún auðvitað klárað sölu á einum banka og það hefur gengið nokkuð vel þannig að ég tel að við höfum nokkuð marga hluti til að vera stolt af.