fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Við höfum komið með fjölda tillagna og við vorum að vonast til þess að hæstv. ríkisstjórn myndi einhvers staðar reyna að hagræða eða laga til í ríkisrekstrinum eins og hún hefur talað svo ítrekað um. Þá var ég sérstaklega vongóður um þessar tillögur eftir að hafa lesið blaðaviðtal við hæstv. fjármálaráðherra núna á dögunum þar sem hann taldi það atriði mjög brýnt að gera breytingar á Íslandspósti þannig að ríkissjóður hætti að blæða peningum þar. Við erum að borga fyrir verri þjónustu. Með því að gera þarna réttar breytingar gætum við dregið úr útgjöldum ríkissjóðs og losað um eignir til að lækka skuldir ríkissjóðs.