fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Hér eru á ferðinni tillögur þess efnis að selja hér eignir ríkisins í Landsbankanum, fleiri fasteignir og fleiri eignir, 49% í Isavia og svo fram eftir götunum. Þetta er sala sem gæti tryggt okkur í kringum 420–450 milljarða til þess að lækka skuldir ríkisins og til þess að lækka á hverju ári vaxtagreiðslur ríkisins um svona 35 milljarða á ári. Það eitt myndi loka fjárlagagatinu. Það eitt myndi held ég láta hv. formann fjárlaganefndar, Ragnar Þór Ingólfsson, sofa betur á nóttunni vitandi það að hann er með stöðugleikaregluna á núllinu og vonandi réttum megin við núllið. Og þau segja nei. Það kemur svo sem ekkert á óvart eftir framvindu dagsins. Þessi tillaga ein og sér hefði þó getað bjargað hæstv. ríkisstjórn úr klípunni sem hún er í.