fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Þótt ég styðji fyrir mitt leyti að flestöllu sem þarna er talið upp verði komið úr höndum ríkisins til þeirra sem betur fara með þessar eignir geri ég mér grein fyrir því að ég hef ekki miklar væntingar til þess að þessi ríkisstjórn hrindi því þjóðþrifamáli í framkvæmd að selja þessar eignir. Þetta er heimildarákvæði og þess vegna vekur það furðu hjá mér að hæstv. ríkisstjórn og þingmenn ríkisstjórnarflokkanna skuli ekki veita þessu heimildarákvæði brautargengi. Það er algjörlega útgjaldalaust fyrir alla þingmenn að færa þetta inn í fjárlög og hinar almennu fjárheimildir, rétt eins og varðar næstu breytingartillögu sem verður borin upp, sem ég mun líka styðja til samþykktar, algjörlega útgjaldalaust.