157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[18:48]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Það sem við getum tekið úr þessari atkvæðagreiðslu er að það eru alla vega tveir stjórnarliðar með samvisku, hv. þm. Pawel Bartoszek og hv. þm. Sigmar Guðmundsson. Þeir eru augljóslega með mikið samviskubit. Það er allt í lagi, það þýðir að menn eru með samvisku. Nú er það þannig, virðulegi forseti, að það sem þeir eru búnir að stæra sig af hér er hvað? Að klára söluna á Íslandsbanka, sem var hafin í tíð síðustu ríkisstjórnar, og klára uppgjörið á ÍL-sjóði, sem var hafið í tíð síðustu ríkisstjórnar. Maður myndi nú ætla, úr því að það er það sem þeir eru að eigna sér og tala um hvað sé stórkostlegt, að þessi samhenta ríkisstjórn hefði nú bara verið á undan okkur með þetta. Hv. þingmenn geti ekki bæði sagt: Heyrðu, við erum í stjórnarsáttmála og við náum ekki í gegn en við erum rosalega samhent. Það getur ekki verið bæði.

Virðulegur forseti. Við erum að fara að samþykkja ýmsa hluti sem frá ríkisstjórninni koma og munum halda því áfram ef það er gott. En það að hæstv. ríkisstjórn (Forseti hringir.) geti ekki samþykkt eina línu þarna, ekki eina, það er algerlega með ólíkindum. Enga, ekki eina hagræðingaraðgerð, (Forseti hringir.) ekki eina tillögu að skattalækkunum. Þetta segir sína sögu.

(Gripið fram í: Heyr, heyr. )[Hlátur í þingsal.]