fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég greiði þessu með glöðu geði atkvæði mitt en ég vil gera meira en það við þessa atkvæðaskýringu. Ég vil hvetja hæstv. ríkisstjórn til að ganga nú í verkið að selja a.m.k. einhverjar af þessum eignum sem margar hverjar mega muna fífil sinn fegurri og hafa verið að grotna niður og við það að eyðileggjast einmitt undir eignarhaldi ríkisins. Ég nefni þetta sérstaklega vegna þess að það felst engin skuldbinding í því að setja þetta heimildarákvæði í fjárlög. Það þarf að taka sérstaka ákvörðun um það. Því mun meiri furðu vakti það að menn gátu ekki unnt minni hlutanum hér að bæta við heimildarákvæði inn á þennan lista. En ég fagna því að þetta sé fram komið og hvet ríkisstjórnina til dáða í þessu.