157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjáraukalög IV 2025.

299. mál
[19:17]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framlagninguna. Eðli málsins samkvæmt hef ég ekki náð að kynna mér efni frumvarpsins. Það vekur þó athygli hversu stórt frumvarpið er og ég er kannski með tvær spurningar. Það er annars vegar hvort allt það sem hæstv. ráðherra vísaði hér til og er í frumvarpinu sé óvænt og ófyrirséð. Það er svona grunnhugmyndin á bak við fjáraukann nema að menn séu bara með tilfærslur á milli málefnasviða. Er þarna eitthvað sem hæstv. ráðherra telur að orki tvímælis þegar kemur að því?

Í annan stað segir hæstv. ráðherra að hallinn sé núna 38 milljarðar fyrir 2025 og það er náttúrlega mun betri niðurstaða heldur en gert var ráð fyrir. Við fengum þær upplýsingar í september að hann væri 19 milljarðar, en eins og ég skil rétt er líka einskiptiskostnaður út af uppgjöri ÍL-sjóðs. Síðan veit maður að það eru auknar tekjur af vörugjöldum vegna mikilla kaupa. Hvort gert sé ráð fyrir því og hverjar þær tekjur í rauninni eru væri kjörið að ráðherra gæti sundurgreint í stuttu andsvari eða ræðu á eftir.

Hvernig er samsetningin á afkomu ársins miðað við það sem var kynnt fyrir okkur í september? Mér sýnist að það sé augljóslega um góðar fréttir að ræða en ef hann myndi taka frá einskiptiskostnaðinn og líka hvort auknar tekjur af vörugjöldum séu komnar þarna inn í áætlun með það? Það er önnur spurningin. Hin spurningin: Er þetta óvænt og ófyrirséð hvort það sé tilfellið í þessu frumvarpi?