157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjáraukalög IV 2025.

299. mál
[19:19]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir spurninguna. Það er hárrétt sem hv. þingmaður nefnir að þetta eru stór fjáraukalög. Eins og ég fór yfir í ræðu minni er megnið af þessari upphæð vegna uppfærslu lífeyrisskuldbindinga sem eru auðvitað ekki kostnaður sem eiginlega fellur heldur er einfaldlega gjaldfærður í samræmi við reikningsskilareglur. Hv. þingmaður, hafandi reynslu til margra ára, veit einnig að gjaldfærslur vegna verðbóta er kostnaður sem er ekki fallinn nema að óverulegu leyti. Hv. þingmaður spyr hvort vörugjöld séu sérstaklega komin þarna inn eða viðbætur vegna þeirra og þetta byggir á eins góðri spá og við höfum á þeim tímapunkti sem þessar ákvarðanir eru teknar. Ætli tölurnar séu ekki svona mánaðar gamlar. Í þessu samhengi vil ég bara benda á að þó að það sé aukning í bílainnflutningi frá síðasta ári þá er ekki um mikla aukningu að ræða frá því fyrir tveimur árum síðan. Þetta er alveg geysilega sveiflukenndur liður þannig að það var ekki. Það er ekki búið að gera ráð fyrir neinu umfram það sem útlit var fyrir þegar þessi lög voru unnin, sem var að það yrðu meiri tekjur af þeim heldur en á árinu 2024. Varðandi síðan bætta afkomu ríkisins tek ég undir með hv. þingmanni að það hefur gengið betur að reka ríkissjóð og er það mjög vel.