fjáraukalög IV 2025.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni og skil vel að hann sé hugsanlega aðeins þreyttur enda búinn að standa sig ákaflega vel í fjárlagaumræðunni sem ég fylgdist auðvitað náið með eins og hann getur ímyndað sér. Það er sem sagt rétt að við reiknum með að halli ríkissjóðs verði 38 milljarðar. Það er líka rétt, eins og kom fram hjá mér áðan, að þetta er 25 milljörðum betri afkoma en gert var ráð fyrir í fjárlögum upprunalega en síðan var búin að koma uppfærsla sem gerði ráð fyrir að þessi halli væri 19 milljarðar. Mismunurinn liggur fyrst og fremst í neikvæðum breytingum á vaxtajöfnuði. Það eru þessar tölur sem eru langsamlega stærstar og hreyfa tölurnar mest. Það verður líka töluverð breyting eftir júlí, eftir uppgjörið á ÍL-sjóði og þegar við sjáum alfarið fyrir endann á ÍL-sjóði þá verða breytingar á vaxtajöfnuði. Skuldir A1-hluta ríkissjóðs hækka auðvitað þegar ÍL-sjóður færist til í bókhaldi ríkisins og það hreyfir tölurnar langsamlega mest. Annars er kostnaður nokkurn veginn á áætlun og tekjur heldur betri en áætlun gerði ráð fyrir.