fjáraukalög IV 2025.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir vangaveltur sínar. Jafnvel þó að þessi liður, andsvör, sé ekki hugsaður sem slíkur þá ætla ég að leyfa mér að svara hans vangaveltum og taka fram að tekjur ríkissjóðs eru áætlaðar núna 1.493 milljarðar á þessu ári, sem er 7 milljörðum lægra. Þessi lækkun skýrist af niðurstöðu álagningar lögaðila sem liggur aldrei fyrir fyrr en mjög seint, þeir skila skattframtölum mun síðar en almenningur, og lægri tekjum af nikótíngjaldi, sem er í sjálfu sér gleðilegt efni enda gjaldið sett til að draga úr neyslu. Í þriðja lagi gerðu áætlanir ráð fyrir gildistöku kílómetragjalds sem ekki varð af. Þetta er þá endurskoðun tekjuáætlunar í kjölfar fjárauka II og leiðir hún til lækkunar upp á 500 milljónir. Gjöldin vaxa síðan um 48 milljarða en ég held að um helmingur þess sé raunverulega bara breytingar á vaxtaliðnum. Ég vona að hv. þingmaður virði það við mig að ég nýti tækifærið og svari honum hér.