fjáraukalög IV 2025.
Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að halda langa ræðu hér en tek fram að mér finnst alveg til fyrirmyndar að hæstv. ráðherra fari í andsvar til að svara einhverju sem ekki er spurt um. Ég er að meina það, mér finnst það algerlega til fyrirmyndar því að ég lít svo á að þessi salur sé til þess að vera með upplýsta umræðu. Sem ráðherra reyndi ég sjálfur að taka mikinn þátt í umræðum hér. Ég geri ráð fyrir að það sé alveg nóg til að takast á um, alla jafna, en það er mjög gott ef fólk alla vega veit sem mest um málaflokkana, hvað við erum sammála um og hvað við erum ósammála um, ef við erum ósammála um eitthvað.
Ég spurði hæstv. ráðherra áðan hvort þetta væri allt óvænt og ófyrirséð. Þegar ég skoða þetta og bara svona skauta í gegnum þetta þá finnst mér vera svolítið mikið af framlögum sem væri erfitt að skilgreina sem óvænt og ófyrirséð, t.d. í almennt réttaröryggi. Ég geri ekki athugasemdir við að það sé forgangsraðað í slíka málaflokka, og einnig er hér t.d. framlag til menntunar og starfsþróunar í því skyni að fjölga lögreglumönnum. Þó er það ekki hugsunin með fjáraukanum að gera slíkt. Sama er með óbyggðanefnd, en að setja 320 milljónir þangað til að klára verkefnið á þessu ári er ekki óvænt eða ófyrirséð. Nú kynni einhver að segja að sá sem hér stendur sé eitthvað á móti þessum málum. Ég er ekkert að segja það. Hins vegar er ákveðin formfesta í þessu til að hafa aga í ríkisfjármálunum, og við viljum hafa aga í ríkisfjármálunum til að halda stöðugleika í efnahagslífinu. Þegar ég renni í gegnum þetta finnst mér vera margt sem tekin er ákvörðun um að gera eiga heima í fjárlögum en hér er það komið í fjárauka. Ef við förum þá leið erum við náttúrlega alveg búin að missa tökin á verkefninu. Ég hef ekki náð að fara í gegnum þetta allt saman en þetta eru þær áhyggjur sem ég hef eftir að hafa skautað í gegnum þetta í nokkrar mínútur. Mér sýnist að verið sé að setja hluti í fjárauka sem eiga heima í fjárlögum. Sannarlega eru hlutir þarna inni, og svo auðvitað millifærslurnar, sem er fullkomlega eðlilegt að hafa. En það veldur mér nokkrum áhyggjum þegar maður skoðar þetta, miðað við að ég sé búinn að skoða þetta í nokkrar mínútur, að manni sýnist að þarna séu útgjöld sem eiga heima í fjárlögum en ekki fjáraukalögum. Sama hvaða skoðanir við höfum í stjórnmálum er gríðarlega mikilvægt að umgjörðin í kringum opinber fjármál sé traust og ýti undir stöðugleika og festu í þjóðfélaginu og efnahagslífinu, til þess var leikurinn gerður. Eins og ég hef margoft nefnt var það mikið framfaraskref þegar við sömdum lögin um opinber fjármál, þar sem menn ætluðu m.a. sérstaklega að taka á því vandamáli sem komið var upp; að menn voru að nota fjáraukalögin í eitthvað annað en það sem þau voru hugsuð fyrir upphaflega. Einhver kynni að segja: Heyrðu, þið Sjálfstæðismenn eigið einhverja sök á því. Já, að sjálfsögðu. Það áttu allir flokkar sök á því en það voru líka allir flokkar sammála um að við ættum að reyna að koma okkur út úr því fyrirkomulagi. Mínar áhyggjur, þegar ég les þetta snögglega yfir, eru að það séu þarna hlutir sem eiga að vera í fjárlögum en ekki fjáraukalögum.