157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjáraukalög IV 2025.

299. mál
[19:37]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir alveg ljómandi góða brýningu sem aldrei þessu vant ég er 100% sammála. Það er hárrétt sem fram kemur í máli hv. þingmanns að það er mjög mikilvægt að fjáraukalögin séu notuð á mjög agaðan hátt. Þess vegna vil ég endurtaka brýningu mína að það er mikilvægt að fjárlaganefnd fari vandlega yfir. Nú er erfitt að gera grein fyrir og skilja að fullu innihald þeirra liða sem þarna eru á fyrirsögninni einni en skýringar á einstökum liðum er mikilvægt að sækja. Ég vil kannski almennt segja að eins og hv. þingmaður nefndi varðandi réttaröryggi þá geta auðvitað átt sér stað ófyrirséðir atburðir þar og ófyrirséð álag á t.d. lögreglu eða fangelsisyfirvöld af ýmsum ástæðum. Það er auðvitað ekki markmið fjárlaga að vera spennitreyja að þessu leyti. Svo eru ákveðnir liðir sem er lögbundið fyrir ríkið að veita og við vitum raunverulega aldrei fyrr en eftir á nákvæmlega hvað muni kosta.

Mig langar til að fylgja aðeins eftir orðum þingmannsins um þann aga sem nauðsynlegt er að sýna í gerð fjáraukalaga vegna þess að þarna er pínulítið flókið verkefni. Ríkið veitir ákveðna þjónustu og úthlutað er ákveðnu fjármagni í það. Auðvitað er kannski vilji til þess eða raunhæft að koma í veg fyrir að kostnaður eigi sér stað og við þurfum þess vegna að vera með þetta fyrirbæri, fjáraukalög. Það er óumflýjanlegt. Aginn í kringum það er ákaflega mikilvægur og ég vildi gjarnan fá frekari útlistun hv. þingmanns á hans sýn á það hversu þröngt þetta svigrúm eigi að vera í ljósi þess hve fjölbreytt lögboðin skylda ríkisins er til að veita þjónustu.